fimmtudagur, 22. janúar 2015

Tvíburaturnarnir

Tvíburaturnarnir voru partur af sjö turnum, World Trade Center, í Manhattan, og á árunum 1972 til 1974 voru turnarnir tvær hæstu byggingar heims. Það unnu yfir 10.000 manns við byggingu turnanna, sem tók 8 ár að fullvinna.
Það munar um 2 metrum á hæð turnanna, nyrðri turninn er 417 metrar, en syðri turninn er 415 metrar. Turnarnir eru samtals um 1.500.000 kg. Tvíburaturnarnir hrundu eftir árásir hryðjuverkamanna þann 11. september 2001. Í árásinni dóu 2.996 og voru skemmdir upp á 10 milljarða dollara



11. september var ekki í fyrsta skipti sem árás var gerð á Tvíburaturnana. 1993 keyrði hryðjuverkamaður bíl, fullum af sprengjum, inn í bílakjallara í Tvíburaturnunum. Sex manns dóu og yfir 1.000 manns voru særðir.


30.000 bollar af kaffi eru afgreiddir á dag. 87 tonn af mat koma inn í byggingarnar á hverjum degi.

17 börn hafa fæðst og 19 manns verið myrtir í turnunum.
3 menn hafa stokkið niður af turnunum með fallhlífar.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli