laugardagur, 24. janúar 2015

Samgöngur

Götur
Þó mikið sé um almenningssamgöngur eru götur, breiðvegir og hraðbrautir stór partur af borginni. Þekktar breiðgötur og götur eru t.d. Wall Street, Madison Avenue, Brodway og Seventh Avenue. Þekkt gatnamót eru Times Square.












Leigubílar
Eitt af þekktari táknum yfir New York City eru gulir leigubílar. Það eru 50.000 manns sem mega keyra leigubíla og yfir 13.000 leigubílar eru á skrá Í NYC. Árið 2012 voru 60% af leigubílum í Norður Ameríku í New York City.







Neðanjarðarlestir
New York City Subway er heimsins stærsta neðanjarðarlesta fljótflutningakerfi, 










Flug
Lofthelgið í New York er það annasamasta í Bandaríkjunum, og eitt af því stærra í heiminum. Þrjú stór flugfélög lenda flugvélum sínum í New York City.








Rútur
Í New York City er stærsta og uppteknasta rútufyrirtæki í heimi sem á, og notar, 7.000 rútur á dag, sem þjóna 200.000 manns daglega. 









Ferjur
Staten Island Ferry er uppteknasta ferja í heiminum. Aðrar ferjur ganga líka í NYC.

fimmtudagur, 22. janúar 2015

Tvíburaturnarnir

Tvíburaturnarnir voru partur af sjö turnum, World Trade Center, í Manhattan, og á árunum 1972 til 1974 voru turnarnir tvær hæstu byggingar heims. Það unnu yfir 10.000 manns við byggingu turnanna, sem tók 8 ár að fullvinna.
Það munar um 2 metrum á hæð turnanna, nyrðri turninn er 417 metrar, en syðri turninn er 415 metrar. Turnarnir eru samtals um 1.500.000 kg. Tvíburaturnarnir hrundu eftir árásir hryðjuverkamanna þann 11. september 2001. Í árásinni dóu 2.996 og voru skemmdir upp á 10 milljarða dollara



11. september var ekki í fyrsta skipti sem árás var gerð á Tvíburaturnana. 1993 keyrði hryðjuverkamaður bíl, fullum af sprengjum, inn í bílakjallara í Tvíburaturnunum. Sex manns dóu og yfir 1.000 manns voru særðir.


30.000 bollar af kaffi eru afgreiddir á dag. 87 tonn af mat koma inn í byggingarnar á hverjum degi.

17 börn hafa fæðst og 19 manns verið myrtir í turnunum.
3 menn hafa stokkið niður af turnunum með fallhlífar.

miðvikudagur, 21. janúar 2015

Times Square

Times Square eru vegamót í Manhattan, þar sem göturnar Broadway og 7. breiðstræti renna saman. Vegamótin hétu upprunalega Longacre Square en þeim var gefið nýtt nafn árið 1904 þegar dagblaðið New York Times opnaði höfuðstöðvarnar sínar þar í Times Building, sem nú heitir One Times Square.
Á byggingunum á Times Square eru margir auglýsingaskjáir og neonljósaskilti.








Á gamlárskvöldi hefur Time Square Ball Drop verið haldið í 108 ár. Á hverju ári mæta fleiri en milljón manns þangað og telja niður í nýtt ár.






Daglega fara um 350.000 manns um Times Square. Það er talað um Times Square sem The Crossroads of the World, eða Gatnamót Heimsins.

Central Park

Central Park er almenningsgarður í mið Manhattan. Garðurinn var fyrst opnaður árið 1857 og var hann þá 315 hektarar að stærð, en seinna var hann stækkaður í 341 hektara, 4 kílómetra langur og 800 metra breiður.








Í dag er Central Park mest sótti garður í Bandaríkjunum, um 38 milljónir sem fara þangað á ári. Garðurinn er opinn allt árið.
Garðurinn er einn af mest notuðu kvikmyndatökustöðum í heiminum.

Það eru yfir 25.000 tré í öllum garðinum.
Mikið af dýrum þrífast í Central Park, t.d. fuglar, íkornar og þvottabirnir.
Það eru tveir innandyra veitingastaðir í garðinum.


Það eru 36 brýr í Central Park


Empire State

Empire State byggingin er 102 hæða skýjakljúfur í miðbæ Manhattan. Nafnið er dregið af viðurnefni New York fylkis. 
Þó að byggingarvinna hafi aðeins staðið yfir í 11 mánuði, þá er þakið er 380 metrar og er byggingin samtals 1454 metrar á hæð. Hún var hæsta bygginging heims í rúm fjöritíu ár, þangað til Tvíburaturnarnir voru kláraðir. Eftir hryðjuverkin 11. september 2001 varð Empire State hæsti skýjakljúfur New York City á ný.











Toppurinn á byggingunni er notaður til að útvarpa mestum hluta af sjónvarpsstöðvum og útvarpssendingum í NYC.









Empire State er verður að meðaltali fyrir eldingu 23 sinnum á ári.
Empire State er heimili svo margra fyrirtækja, að það hefur sitt eigið póstnúmer.
Það kostar allt frá 3000 ísl.kr. upp í 14.000 ísl.kr. að fara upp í turninn. Það tekur um 30 mínútur að komast á efstu hæð.

Frelsisstyttan

Frelsisstyttan, stendur á Liberty Island og er stór stytta sem Frakkland gaf Bandaríkjunum árið 1886. Hún var vígð þann 20. október 1886 í tilefni af aldarafmæli Bandaríkjanna.
Frédéric Bartholdi hannaði styttuna og Gustave Eiffel (hönnuður Eiffelturnsins) hannaði burðarvirki hennar.

Andlit styttunnar er skapað eftir
eftir móður myndhöggvarans


Fullt nafn styttunnar er Liberty Enlightening the World, eða Frelsi Upplýsir Heiminn.
Styttan er úr kopar og er núna öll þakin spanskgrænu. 
Sloppklædda kvenkyns lagaða styttan táknar rómversku gyðjuna Libertas, sem stendur fyrir frelsi.


Styttan heldur uppi kyndli með árituninni 4. júlí 1776, sem er fullveldisdagur Bandaríkjanna. Upprunalega kyndlinum var skipt út árið 1984 fyrir nýjum kyndli úr kopar sem er þakinn 24 karata gulli.














Til að komast upp í kórónuna, þarfa að labba upp stiga sem er 377 tröppur. Það eru 25 gluggar í kórónunni. Gaddarnir á kórónunni tákna sjö höf heimsins og sjö heimsálfurnar í heiminu, sem gefur til kynna alþjóðlega hugtakið um frelsi.













Þó ekki sjáist í fætur stytturnar, þá eru þær umkringdar brotnum keðjum. Hægri löppin er reist upp sem táknar að hún vill að kúgun og þrælahaldi verði hætt.

Frá jörðu upp í efsta punkt kyndilsins eru 93 metrar og vegur styttan 204 tonn. Styttan notar skó númer 878. Mitti styttunnar er 10,7 metrar.
Um 4 milljónir fara og skoða styttuna á ári.

þriðjudagur, 20. janúar 2015

Heimili fræga fólksins í Manhattan

Amanda Seyfried keypti sér 1,9 milljón dollara íbúð í Greenwich Village, Manhattan.

Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, borðstofa, eldhús, þvottaherbergi, fataherbergi og bílskúr í kjallaranum.




Cameron Diaz á 220 fermetra íbúð í Manhattan sem hún innrétti sjálf.



Húsið er í gamaldags stíl, en er samt í svala Kaliforníu stílnum sem Diaz vildi hafa. Húsið er í náttúrulegum, gylltum og silfruðum tónum, en eldhúsið er í sterkum grænum lit.






Hugh Jackman býr í um 1000 fermetra, þriggja hæða húsi í West Village, Manhattan. Þaðan hefur hann útsýni yfir Hudson River.
 



Í húsinu finnur þú m.a fimm svefnherbergi, atvinnumanns eldhús, líkamsrækt, gufubað, bókasafn og vínkjallara. Jackman keypti húsið á 21 milljón dollara og er það númer sjö á lista yfir dýrustu heimili fræga fólksins í New York City.

mánudagur, 19. janúar 2015

Manhattan

Manhattan er einn af fimm borgarhlutum New York City í Bandaríkjunum.
Kort sem sýnir Manhattan litað gult











Manhattan er staðsett á samnefndri eyju, ásamt nokkrum minni eyjum í kring og litlu svæði á meginlandinu. Manhattan eyjan er aðskilin frá New Jersey af Hudson River og frá Long Island af East River.
Manhattan er minnsti, 59 ferkílómetrar, en þéttbýlasti hluti New York City, þar sem 1,6 milljón íbúar búa.

One World Trade Center er hæsti turn Bandaríkjanna. Turninn er í neðri hluta Manhattan á Ground Zero, þar sem Tvíburaturnarnir voru. Hann er 564 metrar og á 104 hæðum.
















Frelsisstyttan er stytta sem Frakkland gaf Bandaríkjunum. Styttan stendur á Liberty Island og býður ferðamenn og aðra velkomna. Styttan er úr kopar og er öll þakin spanksgrænu.

Brooklyn

Brooklyn er einn af fimm borgarhlutum New York City í Bandaríkjunum.
Kort sem sýnir Brooklyn litað gult











Brooklyn er staðsett á vestasta hluta Long Island og til norðausturs er Queens. Allir aðrir kantar eru umluknir sjó og sundinu East River.

Brooklyn er fjölmennasti borgarhlutinn, með um 2,6 milljónir íbúa. Brooklyn er næst stærsti borgarhlutinn, 183 ferkílómetrar.

Brooklyn Bridge er ein af eldri brúm í Bandaríkjunum. Hún er um 1,8 km á lengd og 26 m á breidd. Hún var opnuð fyrir 131 ári. Á hverjum degi fara um 150.000 bílar yfir hana. Brúin tengir Brooklyn og Mahattan. Það er frítt að keyra yfir hana. 















Brooklyn Bridge Park er 34 hektara garður við East River sem var opnaður 2008. Honum er skipt niður í 6 hluta.


The Bronx

The Bronx er einn af fimm borgarhlutum New York City í Bandaríkjunum.
Kort sem sýnir The Bronx litað gult













The Bronx er nyrsti hluti borgarinnar og sá eini sem er á meginlandi Norður-Ameríku. Borgarhlutanum tilheyra einnig nokkrar litlar eyjar. Áin Harlem River aðskilur The Bronx frá Manhattan.
Í The Bronx eru um 1,4 milljónir íbúar, og er því önnur fámennasta borgin og önnur minnsta, 109 ferkílómetrar.

Í The Bronx er stærsti dýragarður í allri Norður-Ameríku, Bronx Zoo. Hann er 107 hektarar og er 115 ára. Í honum eru 6.000 dýr af 650 tegundum.











Bronx-Whitestone Bridge er sex akreina, 1,1 km löng og 75 ára gömul brú. Byggingarkostnaðurinn var 19,5 milljónir dollara, sem er um 2,5 milljarður ísl.kr. Hún tengir Bronx og Whitestone í Queens saman.



Queens

Queens er einn af fimm borgarhlutum New York City í Bandaríkjunum.
Kort sem sýnir Queens litað gult









Queens er staðsett á vesturhluta Long Island. Einnig tilheyra Queens nokkrar litlar eyjar.
Íbúar Queens eru rúmlega 2,3 milljónir. Queens er næst fjölmennasti borgarhlutinn en er stærstur, 283 ferkílómetrar.

Unisphere er 43 metra hátt stál hnattlíkan sem er að finna í Flushing Meadows-Corona Park. Það vegur um 410.000 kg og er 37 metrar í þvermál.








Citi Field er hafnaboltavöllur í Flushing Meadows-Corona Park. Það er pláss þar fyrir um 45.000 manns. Það kostaði um 990 milljónir dollara að byggja völlinn.



Staten Island

Staten Island er einn af fimm borgarhlutum New York City í Bandaríkjunum.
Kort sem sýnir Staten Island litað gult








Staten Island er staðsett á samnefndri eyju í suðvesturhluta New York City, nálægt höfn borgarinnar.
Þar búa um 460 þúsund manns og er því Staten Island langfámennasti hluti borgarinnar, þó hann sé þriðji stærsti borgarhlutinn, 260 ferkílómetrar.

Frá syðsta odda Manhattan fer ferja, Staten Island Ferrytil Staten Island. Ferjan er uppteknasta ferja í heiminum, hún gengur allan sólarhringinn. Hún er um 25 mínútur á leiðinni í hvora átt, leiðin er 8,4 km. Leið hennar liggur fram hjá Liberty Island, þar sem Frelsisstyttan er.







Postcards er 9 metra hátt utandyra minnismerki sem heiðrar alla þá 274 Staten Islands-búa sem létu lífið í hryðjuverkunum þann 11. september 2001.

New York City

New York City er fjölmennasta borg New York fylkis, og einnig Bandaríkjanna, með 8.4 milljónir íbúa af ýmsum þjóðernum. Borgin er um 800 ferkílómetrar að stærð.












New York City er stjórnsýslulega skipt í fimm hluta: 



  • Manhattan
  • Brooklyn
  • The Bronx
  • Queens
  • Staten Island














New York fylki er á austurstönd Bandaríkjanna.


Höfuðborg New York er Albany. Þar búa um 100.000 manns.