þriðjudagur, 20. janúar 2015

Heimili fræga fólksins í Manhattan

Amanda Seyfried keypti sér 1,9 milljón dollara íbúð í Greenwich Village, Manhattan.

Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, borðstofa, eldhús, þvottaherbergi, fataherbergi og bílskúr í kjallaranum.




Cameron Diaz á 220 fermetra íbúð í Manhattan sem hún innrétti sjálf.



Húsið er í gamaldags stíl, en er samt í svala Kaliforníu stílnum sem Diaz vildi hafa. Húsið er í náttúrulegum, gylltum og silfruðum tónum, en eldhúsið er í sterkum grænum lit.






Hugh Jackman býr í um 1000 fermetra, þriggja hæða húsi í West Village, Manhattan. Þaðan hefur hann útsýni yfir Hudson River.
 



Í húsinu finnur þú m.a fimm svefnherbergi, atvinnumanns eldhús, líkamsrækt, gufubað, bókasafn og vínkjallara. Jackman keypti húsið á 21 milljón dollara og er það númer sjö á lista yfir dýrustu heimili fræga fólksins í New York City.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli