sunnudagur, 22. mars 2015

Flatiron

Flatiron byggingin er á 175 Fifth Avenue í Manhattan í New York City. Flatiron var byggð á árunim 1901-1903, er á 21 hæð og er 93 metra há, ein af hærri bygginum í New York City. Hún er þríhyrningslaga skýjakljúfur sem mögulega er einn af mest mynduðu byggingum í heimi, en engin bygging hefur oftar verið á frímerkjum en Flatiron. Hverfið sem Flatiron stendur í, Flatiron district, er nefnt eftir skýjakljúfrinum sjálfum.



















Flatiron átti upphaflega að heita Fuller Building, eftir fyrirtækinu sem byggði hana, en fékk seinna nafnið Flatiron, vegna óvenjulegrar lögunar sem minnti á straujárn. 

þriðjudagur, 17. febrúar 2015

Tískuvikan

Í New York er ein af fjórum stærstu tískuvikum í heiminum, ásamt París, London og Mílanó.
New York Tískuvikan, eða New York Fashion Week, er haldin í febrúar og september á hverju ári. Hún stendur yfirleitt yfir í 7-9 dag, núna er hún haldin 12. -19. febrúar.
Núna, í febrúar eru haustlínur kynntar og má sjá brot af þeim hér að neðan.


miðvikudagur, 11. febrúar 2015

Kim Kardashian

Þó að veðrið sé ekki alltaf það besta í New York City, nánar tiltekið Manhattan, þá lætur Kim Kardashian það stoppa sig.
Hin 34 ára sýndi það að veðrið, sem þennan mánudag var mínus ein, hefur engin áhrif á fatavalið.
Kim Kardashian, 9. febrúar, í Manhattan




















Kim var ein sinnar ferðar í verslunarleiðangri. Raunveruleikastjarnan flaug til New York City eftir Grammy verðlaunahátíðina, sem hafði verið deginum á undan, sem hún auðvitað mætti á.
Kim á Grammy verðlaununum, 8. febrúar

sunnudagur, 8. febrúar 2015

Ostakökur

Ekkert segir "New York" eins og ostakaka. Léttar og mjúkar eða þungar og þykkar, New York City ostakökur eru bakaðar með allskonar áferðum.
Á nær öllum veitingastöðum í New York City er einhver gerð af ostaköku á matseðlinum, því hvað er betra en að enda góða máltíð á sneið af ostaköku. Er það því mottó margra að því betri sem kakan er því betri er veitingastaðurinn.
Mörg eru bakaríin í New York City en eftirtalin bakarí eru talin þau bestu þegar kemur að ostakökum.
  • Jounior's
  • Two Little Red Hens
  • Lady M Confections
  • Martha's Country Bakery
  • Eileen's Special Cheescake

Þeir sem eru ekki á leiðinni til New York City en langar að smakka, þurfa bara að baka sjálf, eða láta einhvern annan gera það fyrir sig sem er miklu þægilegra.



















New York ostakaka (fyrir 12)

Botn:
85 gr smjör, bráðið
140-240 gr Digestive kex, fínt mulið
1 msk sykur

Fylling:
900 gr rjómaostur
250 gr strásykur
3 msk hveiti
1 1/2 tsk vanilludropar
3 stór egg
1 eggjahvíta
200 ml sýrður rjómi
1 1/2 tsk sítrónusafi
Börkur af 1 sítrónu, um 2 msk

Sýrður rjóma toppur:
200 ml sýrður rjómi
1 msk strásykur
2 tsk sítrónusafi


Aðferð:

Botninn
1.1 Hita ofninn á 160 °C og blástur.
1.2 Þekja 23 cm springform með bökunarpappír.
1.3 Bræða smjörið í potti og bæta svo kexmulningi og sykri út í og hræra því vel saman.
1.4 Þrýsta því vel í formið og baka í 5-10 mínútur.
1.5 Láta kólna á grind meðan fyllingin er búin til.

Fyllingin
2.1 Hækka hitann á ofninum upp í 200 °C.
2.2 Hræra mjúkan rjómaostinn á lágum-miðlungs hraða í hrærivél,  í um 2 mínútur eða þangað til hann verður rjómakenndur
2.3 Með hrærivélina á lágum hraða er sykur, hveiti og salt sett jafnt út í. Skafa niður á hliðunum þangað til allt er vel blandað saman.
2.4 Bæta út í vanilludropum, sítrónubörk, sítrónusafa og þeyta það.
2.5 Bæta út í einu eggi í einu og eggjahvítunni.
2.6 Í annari skál, hræra sýrða rjómann svo hann verði mjúkur.
2.7 Taka sýrða rjómann og setja út í rjómaostablönduna og halda áfram á lágum hraða.
2.8 Þeyta til að blanda öllu saman, ekki ofgera, fyllingin á að vera slétt, létt og loftkennd.

3.1 Smyrja smjöri á hliðarnar á forminu með botninum.
3.2 Hella allri fyllingunni í formið.
3.3 Fyllingin á að vera eins slétt og mögulegt er, ef það koma loftbólur í fyllinguna eru þær stungnar með hníf.
3.4 Baka kökuna í 10 mínútur.
3.5 Lækka hitann niður í 90 °C og baka áfram í 20-25 mínútur.
3.6 Ef formið er hrist lauslega á kakan að juða til.
3.7 Slökkt er á ofninum og eldavélshurðin er opnuð ef ostakakan á að vera mjúk í miðjunni, eða lokuð ef kakan á að vera með þurrari áferð.
3.8 Kakan látin sitja í ofninum í 2 klst.

Sýrður rjóma toppur
4.1 Sýrðum rjóma, sykri og sítrónusafa er blandað saman.
4.2 Smurt yfir alla ostakökuna.

5.1 Kakan er lauslega hulin með álpappír og geymd í ísskáp í a.m.k. 8 klst
5.2 Hníf er runnið meðfram forminu til að losa hana.
5.3 Opnað er hliðina á forminu, rennt ostakökunni af botninum á forminu á disk og síðast er bökunarpappírinn tekin undan.

Innfætt frægt fólk

Margir hafa fæðst í New York City, og er því ekki skrýtið að einhverjir af þeim séu frægir.

Tónlist

















Tónlistarfólk sem fæddist í New York City eru meðal annars:
  • Jennifer Lopez
  • Lady Gaga
  • Christina Aguileira
  • Alicia Keys
  • Lea Michele
  • Lana Del Rey
  • Idina Menzel
  • Barbara Streisand
  • Cyndi Lauper
  • Jay-Z
  • Marc Anthony
  • Lenny Kravitz

Leiklist

















Leikkonur og leikarar fædd í New York City eru meðal annars:
  • Anne Hathaway
  • Scarlet Johansson
  • Lindsay Lohan
  • Chris Rock
  • Eddie Murphy
  • Sylvester Stallone
  • Maggie Gyllenhaal
  • Julia Louis-Dreyfus
  • Whoopi Goldberg
  • Steve Buscemi
  • Vin Disel
  • Josh Peck

Fatahönnun









Fatahönnuðir sem fæddust í New York City eru meðal annars:
  • Calvin Klein
  • Marc Jacobs
  • Ralph Lauren

Annað markverkt fólk frá New York City eru til dæmis:
  • Joan Rivers
  • Mike Tyson
  • Woody Allen
  • Jimmy Kimmel
  • Jimmy Fallon
  • Paris Hilton

Veður

VETUR
Veturinn er frá nóvember og út febrúar. Það getur orðið kalt, mjög algengt er að það sé á milli -8°C og 5°C. Það er oft blautt á götnum, annað hvort út af rigningu eða slabbi. Það getur líka orðið ansi snjóþungt. Snjókoman er mest í janúar og febrúar, og eru því hvít jól sjaldgjæf, en þau koma stundum fyrir. 
Skautavöllur í Central Park er opinn á veturna











VOR
Vorið er oftast frá mars og fram í miðjan maí. Það getur stundum verið napurt framan af. Hitastigið er á milli 5°C og 15°C, en það rignir oft á þessum árstíma.
Blómstrandi kirsuberjatré í Manhattan










SUMAR
Sumarið er frá lok maí og alveg út september. Hitinn er ofast 25-30°C en í júlí og ágúst getur farið reglulega upp í 35°C. Vindurinn er alltaf heitur, en stundum getur rignt mikið seinni part dagsins.
Vinsælt er að fara í sólbað í Central Park









HAUST
Haustið er í raun bara október og hálfur nóvember. Hitastigið er sirka 10-15°C, og bara frekar milt.
Gosbrunnurinn Bethesda í Central Park











Myndrit sem sýnir meðalhita hvers mánaðar

Íþróttir

Íþróttalíf í New York City er víða frægt og hefur verið borginni til mikils sóma.


Í New York City eru höfuðstöðvar margra íþróttaliða; fótbolta, hafnarbolta, körfubolta, ruðnings og íshokkís. Íþróttafélögin leika í fimm stærstu íþróttadeildum í Bandaríkjunum, og hafa þau unnið samtals 53 titla.

Madison Square Garden er heimili körfuboltaliðanna Knicks og Rangers.
Séð Madison Square Garden utanfrá
Séð inn í Madison Square Garden fyrir Knicks leik



New York City Maraþonið er stærsta maraþon í heimi. Hlaupið byrjar á Staten Island og endar í Central Park, farið er í gegnum alla borgarhlutana. Árið 2014 tóku 50.869 þátt, en 305 af þeim náðu ekki að klára.
Keppendur á leið yfir Verrazano-Narrows brúna