Á nær öllum veitingastöðum í New York City er einhver gerð af ostaköku á matseðlinum, því hvað er betra en að enda góða máltíð á sneið af ostaköku. Er það því mottó margra að því betri sem kakan er því betri er veitingastaðurinn.
Mörg eru bakaríin í New York City en eftirtalin bakarí eru talin þau bestu þegar kemur að ostakökum.
- Jounior's
- Two Little Red Hens
- Lady M Confections
- Martha's Country Bakery
- Eileen's Special Cheescake
Þeir sem eru ekki á leiðinni til New York City en langar að smakka, þurfa bara að baka sjálf, eða láta einhvern annan gera það fyrir sig sem er miklu þægilegra.
New York ostakaka (fyrir 12)
Botn:
85 gr smjör, bráðið
140-240 gr Digestive kex, fínt mulið
1 msk sykur
Fylling:
900 gr rjómaostur
250 gr strásykur
3 msk hveiti
1 1/2 tsk vanilludropar
3 stór egg
1 eggjahvíta
200 ml sýrður rjómi
1 1/2 tsk sítrónusafi
Börkur af 1 sítrónu, um 2 msk
Sýrður rjóma toppur:
200 ml sýrður rjómi
1 msk strásykur
2 tsk sítrónusafi
Aðferð:
Botninn
1.1 Hita ofninn á 160 °C og blástur.
1.2 Þekja 23 cm springform með bökunarpappír.
1.3 Bræða smjörið í potti og bæta svo kexmulningi og sykri út í og hræra því vel saman.
1.4 Þrýsta því vel í formið og baka í 5-10 mínútur.
1.5 Láta kólna á grind meðan fyllingin er búin til.
Fyllingin
2.1 Hækka hitann á ofninum upp í 200 °C.
2.2 Hræra mjúkan rjómaostinn á lágum-miðlungs hraða í hrærivél, í um 2 mínútur eða þangað til hann verður rjómakenndur
2.3 Með hrærivélina á lágum hraða er sykur, hveiti og salt sett jafnt út í. Skafa niður á hliðunum þangað til allt er vel blandað saman.
2.4 Bæta út í vanilludropum, sítrónubörk, sítrónusafa og þeyta það.
2.5 Bæta út í einu eggi í einu og eggjahvítunni.
2.6 Í annari skál, hræra sýrða rjómann svo hann verði mjúkur.
2.7 Taka sýrða rjómann og setja út í rjómaostablönduna og halda áfram á lágum hraða.
2.8 Þeyta til að blanda öllu saman, ekki ofgera, fyllingin á að vera slétt, létt og loftkennd.
3.1 Smyrja smjöri á hliðarnar á forminu með botninum.
3.2 Hella allri fyllingunni í formið.
3.3 Fyllingin á að vera eins slétt og mögulegt er, ef það koma loftbólur í fyllinguna eru þær stungnar með hníf.
3.4 Baka kökuna í 10 mínútur.
3.5 Lækka hitann niður í 90 °C og baka áfram í 20-25 mínútur.
3.6 Ef formið er hrist lauslega á kakan að juða til.
3.7 Slökkt er á ofninum og eldavélshurðin er opnuð ef ostakakan á að vera mjúk í miðjunni, eða lokuð ef kakan á að vera með þurrari áferð.
3.8 Kakan látin sitja í ofninum í 2 klst.
Sýrður rjóma toppur
4.1 Sýrðum rjóma, sykri og sítrónusafa er blandað saman.
4.2 Smurt yfir alla ostakökuna.
5.1 Kakan er lauslega hulin með álpappír og geymd í ísskáp í a.m.k. 8 klst
5.2 Hníf er runnið meðfram forminu til að losa hana.
5.3 Opnað er hliðina á forminu, rennt ostakökunni af botninum á forminu á disk og síðast er bökunarpappírinn tekin undan.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli