fimmtudagur, 5. febrúar 2015

Tungumál, kynþættir og trú

Tungumál
Í New York eru töluð 800 tungumál, sem gerir hana málfarslega fjölbreyttustu borg í heimi. Enska er mest talaða tungumálið, þó aðeins séu 51% af íbúum sem tala bara ensku heima hjá sér.


Mest töluðu tungumálin eru:

  1. Enska, 4 milljónir
  2. Spænska, 1,9 milljónir
  3. Kínverska, 420 þúsund
  4. Rússneska, 190 þúsund
  5. Franska, 180 þúsund
Næst á eftir koma m.a ítalska, kóreska, pólska, arabíska og hebreska


Kynþættir
Af þeim rúmlega 8,4 milljónum sem búa í New York City, þá eru 45% íbúa hvítir, um 3,8 milljónir. 


Skiptingin er svona:

  1. Hvítir, 45%
  2. Svartir, 25%
  3. Rómanskir, 20%
  4. Asískir, 10%


Trú
Sagt er að New York City sé fimmta 'trúaðasta' borg í heimi, en þar eru 83% sem tilheyra trú, flestir eru kaþólskir.


Skoðum skiptinguna nánar:

  1. Kaþólskir, 62%
  2. Gyðingar, 22%
  3. Mótmælendur, 10%
  4. Múslimar, 6%

Engin ummæli:

Skrifa ummæli