VETUR
Veturinn er frá nóvember og út febrúar. Það getur orðið kalt, mjög algengt er að það sé á milli -8°C og 5°C. Það er oft blautt á götnum, annað hvort út af rigningu eða slabbi. Það getur líka orðið ansi snjóþungt. Snjókoman er mest í janúar og febrúar, og eru því hvít jól sjaldgjæf, en þau koma stundum fyrir.
![]() |
| Skautavöllur í Central Park er opinn á veturna |
VOR
Vorið er oftast frá mars og fram í miðjan maí. Það getur stundum verið napurt framan af. Hitastigið er á milli 5°C og 15°C, en það rignir oft á þessum árstíma.
![]() |
| Blómstrandi kirsuberjatré í Manhattan |
SUMAR
Sumarið er frá lok maí og alveg út september. Hitinn er ofast 25-30°C en í júlí og ágúst getur farið reglulega upp í 35°C. Vindurinn er alltaf heitur, en stundum getur rignt mikið seinni part dagsins.
![]() |
| Vinsælt er að fara í sólbað í Central Park |
HAUST
Haustið er í raun bara október og hálfur nóvember. Hitastigið er sirka 10-15°C, og bara frekar milt.
![]() |
| Gosbrunnurinn Bethesda í Central Park |
![]() |
| Myndrit sem sýnir meðalhita hvers mánaðar |





Engin ummæli:
Skrifa ummæli