Staten Island er einn af fimm borgarhlutum New York City í Bandaríkjunum.
![]() |
| Kort sem sýnir Staten Island litað gult |
Staten Island er staðsett á samnefndri eyju í suðvesturhluta New York City, nálægt höfn borgarinnar.
Þar búa um 460 þúsund manns og er því Staten Island langfámennasti hluti borgarinnar, þó hann sé þriðji stærsti borgarhlutinn, 260 ferkílómetrar.
Frá syðsta odda Manhattan fer ferja, Staten Island Ferry, til Staten Island. Ferjan er uppteknasta ferja í heiminum, hún gengur allan sólarhringinn. Hún er um 25 mínútur á leiðinni í hvora átt, leiðin er 8,4 km. Leið hennar liggur fram hjá Liberty Island, þar sem Frelsisstyttan er.
Postcards er 9 metra hátt utandyra minnismerki sem heiðrar alla þá 274 Staten Islands-búa sem létu lífið í hryðjuverkunum þann 11. september 2001.



Engin ummæli:
Skrifa ummæli