miðvikudagur, 21. janúar 2015

Times Square

Times Square eru vegamót í Manhattan, þar sem göturnar Broadway og 7. breiðstræti renna saman. Vegamótin hétu upprunalega Longacre Square en þeim var gefið nýtt nafn árið 1904 þegar dagblaðið New York Times opnaði höfuðstöðvarnar sínar þar í Times Building, sem nú heitir One Times Square.
Á byggingunum á Times Square eru margir auglýsingaskjáir og neonljósaskilti.








Á gamlárskvöldi hefur Time Square Ball Drop verið haldið í 108 ár. Á hverju ári mæta fleiri en milljón manns þangað og telja niður í nýtt ár.






Daglega fara um 350.000 manns um Times Square. Það er talað um Times Square sem The Crossroads of the World, eða Gatnamót Heimsins.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli